Loftleiðavalsinn
- Lag
- Svavar Benediktsson
- Texti
- Kristján frá Djúpalæk, 1955
- Flytjandi
- Smárakvartettinn í Reykjavík, plötunúmer H.S.H. 19 (útgáfuár óstaðfest; platan var auglýst í nóvember 1955)
Upptaka úr safni Ómars Arasonar.
Texti
Hve fjarlægðin dregur, til framandi landa
við fljúgum í svimandi hæð,
í skínandi sól yfir skýjanna földum:
Hér skynjum við, jörð, þína smæð.
Til austur- og vesturheims loftbrúin liggur,
frá landinu út eða heim.
Hver ól ekki draum þann að fljúga sem fuglinn
í fjarskann um ljósvakans geim?
Og langi þig unaðar lífsins að njóta
þá loftleiðis tekur þú far.
En frjósemi Vínlands dró fornmanna hugi,
þó fegurst um Norðurlönd var.
Og seiðandi dul er hin suðræna ótta
og svalandi þrúgunnar skál.
Og mætir þú augum, sem dökkna í dansi,
er djúp þeirra logandi bál.
En hvers, sem þú nýtur, og hvar sem þú gistir
kýs hjarta þitt feðranna grund.
Og loftleiðis svífur þú heim yfir hafið
um hnattanna blikandi sund.
Og brosandi freyjurnar bera þér vistir,
þú blundar við hreyflanna dyn.
Svo lækkum við flugið og landið þér heilsar
sem langþráðum, elskandi vin.
Um textann
Textinn hér fylgir Vikunni 1956. Hann birtist víðar og ber útgáfum ekki alveg saman. Í Samtíðinni 1956, þar sem textinn er prentaður eins og Smárakvartettinn syngur hann, stendur „með Loftleiðum tekur þú far“ í stað „þá loftleiðis tekur þú far“ og „Og Loftleiðir skila þér heim yfir hafið“ í stað „Og loftleiðis svífur þú heim yfir hafið“. Í Heima er bezt 1959 stendur „Og frjósemi Vínlands“ í stað „En frjósemi Vínlands“ og „En hvert sem þú flýgur og hvar sem þú gistir“ í stað „En hvers, sem þú nýtur, og hvar sem þú gistir“. Í Vikunni stendur „feyjurnar“, sem er prentvilla fyrir „freyjurnar“.
Þetta er ekki sama lag og „Við fljúgum“ (Loftleiðavals) sem Haukur Morthens söng inn á plötu 1959, né „Loftleiðavalsinn“ sem keppti í danslagakeppni SKT 1958.
Heimildir
- Þjóðviljinn, 5. febrúar 1955, bls. 10 (fyrsta erindið)
- Nýi tíminn, 10. febrúar 1955, bls. 10 (tvö fyrstu erindin)
- Morgunblaðið, 20. nóvember 1955, bls. 12 (auglýsing um plötuna)
- Samtíðin, 1956, 3. tbl., bls. 8
- Vikan, 1956, 32. tbl., bls. 2
- Þjóðviljinn, 15. ágúst 1956, bls. 3
- Nýi tíminn, 23. ágúst 1956, bls. 3
- Heima er bezt, 1959, nr. 7, bls. 244
Ábendingar, leiðréttingar og fleiri upplýsingar eru vel þegnar.

